Til upphitunar íbúða og sumarhúsa allt að 300m² að stærð.
Hitasvið: 25-90°C
Afl þrískipt. Hitarinn er búinn rafeindaliðum (solid state) og er nánast hljóðlaus.
Með veltirofum á stjórnborði er hægt að takmarka aflið í 3 þrepum t.d. 5, 10 og 15kW
Öryggiskröfur: Í hitaranum er öryggishöfuðrofi sem yfirhitavar vinnur á, þannig að við yfirhitun leysir öryggishöfuðrofinn út. Öryggishöfuðrofinn kemur ekki inn að sjálfsdáðum fyrr en yfirhitavarið er endursett (öll tæki). Afgreiddur tilbúinn til uppsetningar, með öllum rafbúnaði.
HxBxD 700 x 400 x 200 mm
Fram- og bakrennsli 1"
Spenna:2N460V, 3N400V 3x230/400V