Nú er í gangi könnun þar sem markmiðið er að bæta þjónustu Fagkaupa og nær hún til viðskiptavina allra rekstrareininga og útstöðva félagsins. Rannsóknarfyrirtækið Prósent sér alfarið um framkvæmd könnunarinnar en könnunin er send rafrænt á netföng (og sms í einstaka tilfellum) frá netfanginu [email protected] . Hægt er að svara könnun í tölvu og/eða farsíma og það tekur um 5 mínútur að svara könnuninni.
Markmið könnunarinnar er að greina tækifæri til umbóta, sérstaklega með það í huga að bæta þjónustu við viðskiptavini. Það er okkur mikilvægt að fá sem besta svörun og þökkum við viðskiptavinum kærlega fyrir þátttökuna og fyrir að hjálpa okkur að bæta þjónustuna.
Eftir að könnun lýkur mun Prósent vera okkur innan handar við að draga út einn heppinn þátttakanda sem hlýtur gjafabréf með Icelandair að verðmæti 100.000 kr

(Prósent lætur aldrei af hendi persónugreinanlegar upplýsingar þátttakenda nema með upplýstu samþykki. Farið verður með öll svör sem trúnaðarmál. Prósent starfar eftir ströngum siðareglum ESOMAR sem settar eru af alþjóðasamtökum markaðsrannsóknarfyrirtækja og er sérstaklega unnið eftir lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Við hvetjum þátttakendur til að kynna sér rétt sinn og hvernig Prósent meðhöndlar og verndar persónuupplýsingar þátttakenda með því að lesa persónuverndarstefnu þeirra. Persónuverndarstefnu Fagkaupa má einnig finna hér: https://fagkaup.is/persónuverndarstefna)